Advice er jafn ómerkur hópur og InDefence. Báðir töldu óhætt að taka áhættu af málaferlum vegna IceSave. Óhætt væri að fella síðasta og bezta IceSave samninginn í þjóðaratkvæðagreiðslu. Ekkert mundi verða af málaferlunum. Nú er hins vegar búið að höfða mál. Tölfræðin segir Eftirlitsstofnun Evrópska efnahagssvæðisins nánast alltaf vinna sín mál og Ísland tapa oftast sínum. Nú segja Advice og InDefence, að Ísland mundi vinna, ef Össur Skarphéðinsson færi frá málinu. Þegar málið tapast, munu hóparnir kenna Össuri um þeirra eigið rugl. Samt verður tjón okkar einmitt Advice og Indefence að kenna.