Borgarstjórinn og menntaráðherrann hafa tekið saman höndum um að fullgera tónlistarhöllina Svipvindastaði á torginu Alviðru. Samt sýna tölur höllina fara 650 milljónir króna fram úr áætlun. 650 milljónir króna. Öll á hún að kosta 25 milljarða króna fullbyggð. 25 milljarða í miðri kreppu. Þá er eftir að reka höllina í kreppu. Nær er að láta hana standa hálfbyggða til minnis um taumlaust rugl fyrrverandi ráðamanna og Björgólfs Guðmundssonar. Eins og Gedächniskirche í Berlín, minning um stríð. Þjóðin á nóg með að hreinsa upp gjaldþrot útrásarvíkinga, þótt þessari byrði verði létt af herðum hennar.