Vernd gegn villimönnum

Greinar

Frásagnir af misþyrmingum á almannafæri hafa verið óvenju tíðar í fjölmiðlum að undanförnu. Meðal annars hefur verið sagt frá manni, sem hefur þrisvar sinnum á skömmum tíma slasað fólk og jafnvel valdið því örkumlum.

Geðræn vandamál eru vafalaust helzta forsenda þessara líkamsárása og er læknismeðferð því nauðsynleg. Hins vegar er ófært, að þjóðfélagið sé notað sem tilraunastofa. Almennir borgarar þurfa vernd gegn þessum árásarmönn- um, hvort sem þeir teljast glæpamenn eða geðsjúklingar.

Birting nafna slíkra manna og mynda af þeim getur hjálpað fólki til að vara sig á þeim. En lögreglan hefur að minnsta kosti upp á síðkastið neitað að láta slíkt í té, þótt fjölmiðlar hafi farið fram á það. Takist fjölmiðlum ekki að ná þessum upplýsingum eftir öðrum leiðum, er ekki unnt að veita neina vernd á þessu sviði.

Vitanlega þyrfti að hafa slíka menn á lokuðum hælum, þar sem þeir geta ekki valdið samborgurum sínum örkumlum. En hér er ekki til neitt millistig sjúkrahúss og fangelsis. 0g tilhneigingin er sú að vista þessa menn á sjúkrahúsum og láta þá jafnvel ganga lausa á milli.

Engin lækning felst í að loka árásarmenn inni í fangelsum. En hagsmunir almennra borgara verða að sitja í fyrirrúmi. Líkamsárásir eru verri glæpir en þjófnaðir og fjárglæfrar, þar sem aðeins eru í húfi þau verðmæti, sem mölur og ryð fá grandað. Líf og limir fólks eru ólíkt mikilvægari.

Þeir eru orðnir nokkuð margir örkumlamennirnir af þessum völdum og fjölgar allt of ört. Dómsmálaráðuneytið verður að grípa í taumana og hindra síbrot á þessu sviði.

Jónas Kristjánsson

Vísir