Ég neyðist til að stíga skref aftur á bak í vegferð minni að pappírslausum viðskiptum. Í rúmt ár hef ég komizt hjá að eiga prentara og hef ekki notað prentara á vinnustöðum. Get ferðast um heiminn án þess að hafa útprentaða farseðla. Geri skattskýrslu á vefnum. En nú er komin pappírsfreisting, sem ég get ekki hafnað. Flugfélögin bjóða vefræna innritun. Ég þarf ekki lengur að standa í biðröð. Innrita mig bara við tölvuna heima hjá mér. Sá hængur er á lúxusnum, að ég þarf að prenta út brottfararspjald. Ég þarf að veifa pappír til að komast inn. Þarf núna að kaupa mér prentara. Ekki vistvænt.
