Vegvísir er skilti, sem stendur við vegamót og segir, hvert vegurinn liggur. Vegakort er kort, sem sýnir allan veginn og nágrenni hans. Þegar stórveldi heimsins bjuggu til áætlun um frið í Palestínu, kölluðu þau það “road map to peace”, sem þýðir og er vegakort til friðar, en alls ekki vegvísir til friðar. Blaðamenn erlendra frétta á íslenzkum fjölmiðlum hafa árum saman étið upp hver eftir öðrum orðið vegvísir í þessu samhengi. Tilraunir til að hafa vit fyrir þeim hafa engan árangur borið. Þetta sýnir í senn hugsunarleti og hjarðhvöt í fámennri stétt.
