Vefþjóðviljinn bullar

Punktar

Vefþjóðviljinn segir í dag, að íbúðalánabankarnir Fannie Mae og Freddie Mac séu ríkisstofnanir. Rangt, þeir eru hlutafélög. Eins og önnur hlutafélög, skráð í kauphöllinni. Hafa ótal hluthafa. Rangt er hjá Vefþjóðviljanum, að þessir bankar minni á Íbúðalánasjóð. Sá sjóður er í eigu ríkisins og hefur enga hluthafa. Íbúðalánabankarnir bandarísku minna á íbúðadeildir íslenzkra banka, Kaupþings, Glitnis, Landsbankans. Yfirtaka bandaríska ríkisins á bönkunum var þjóðnýting. Á röngum forsendum bullar Vefþjóðviljinn langt mál. Yfirtakan vestra er mesta áfall auðhyggjunnar á síðustu áratugum.