Var fyrsti apríl í gær?

Punktar

Útlendingar þurfa ekki ríkisborgararétt til að fjárfesta hér á landi. Hver sem er getur það. Jafnvel í sjávarútvegi, þótt með vægum skilyrðum sé. Engan ríkisborgararétt þarf til að fjárfesta í endurnýjanlegri orku. Ástæðurnar fyrir umsókninni eru rangar. Eitthvað annað hangir á spýtunni. Lögmaður hinna tíu umsækjenda er David Lesperance. Hann er þekktur sérfræðingur í að útvega Bandaríkjamönnum skattaskjól í bananalýðveldum þriðja heimsins. Mér kemur mest á óvart, að hann virðist telja Ísland skattaskjól. Heimasíða hans segir hann útvega lagaskjól gegn sköttum. Fyrsti apríl var samt ekki í gær.