Vantraust á bankaleynd

Punktar

Fólk treystir hvorki gömlu bönkunum né nýju bönkunum. Þess vegna talar það um afnám bankaleyndar. Fólk treystir hvorki gömlu eða nýju yfirmönnunum eða endurskoðendunum, því að þeir hafa bara haft stólaskipti. Þess vegna talar fólk um afnám bankaleyndar. Fólk treystir ekki gömlum og nýjum skilanefndum og bankaráðum. Þess vegna talar fólk um afnám bankaleyndar. Fólk treystir ekki gömlu og nýju fjármálaeftirliti, því að það er hvort tveggja sama gamla tóbakið. Þess vegna talar fólk um afnám bankaleyndar. Af því að ástandið er undarlegt, er eðlilegt, að fólk tali um, að afnema þurfi bankaleynd.