Vangeta alþingis

Punktar

Tvennt er athyglisvert við alþingi. Í fyrsta lagi staðfestir það vangetu sína til að setja landinu stjórnarskrá. Vegna sérhagsmuna getur það ekki einu sinni náð saman um skýran og tæran þjóðarvilja. Eigi að koma hér ný stjórnarskrá, verður það stjórnarskrá fólksins. Í öðru lagi er alþingi ófært um að koma á skynsamlegri sátt um náttúruvernd. Samdi um að víkja frá þúsund ára gamalli sátt um gullinn meðalveg milli hagsmuna landeigenda og ferðafólks. Þar þjónar alþingi sérhag eigenda. Það er rothögg á vinstri græna, sem væntanlega ganga til kosninga með ný náttúrusvik á bakinu. Hér þarf hreinan meirihluta pírata.