Vandræðareglur

Greinar

Flugvallarskatturinn, tveggja vikna takmörkunin á ferðum til sólarlanda og aukin skömmtun ferðagjaldeyris bera vott um mikið en ekki gott hugmyndaflug í íslenzkri skattheimtu og gjaldeyrisvernd.

Af þessum sparnaðar- og hagnaðarráðstöfunum er nú fengin nokkurra mánaða reynsla. Sú reynsla er slæm og ætti að gefa yfirvöldum tilefni til að. endurskoða hugmyndaflug sitt og draga ráðstafanir sínar til baka.

Tveggja vikna takmörkunin eykur kostnað manna við suðurferðir.Í stað þess að fara annað hvert ár í fjögurra vikna ferðir, fara menn nú árlega í þær tveggja vikna ferðir, sem leyfðar eru. Kostnaðaraukinn felst aðallega í tvöföldum flutningskostnaði, en einnig í óhagstæðari dvalarkjörum.

Takmörkunin hefur ekki heldur reynzt fyllilega framkvæmanleg. Veittar hafa verið undanþágur til sjúklinga með læknisvottorð og jafnvel til lögfræðinga, sem hafa hótað málsókn út af reglugerð, sem þeir telja ólöglega.

Gjaldeyrisyfirvöld eru komin í vandræði út af hinum ótrúlega.mikla fjölda “sjúklinga”, sem þarf samkvæmt læknisráði á meira en tveggja vikna sólböðum og hvíld að halda. Og fari einhver lögfræðingur að selja almenningi þjónustu sína í samanburði á reglugerð og lögum um þetta efni, eiga gjaldeyrisyfirvöld á hættu, að þetta leiðinlega tveggja vikna kerfi fari endanlega úr skorðum.

Gjaldeyrislega er lítill sem enginn árangur af þessu kerfi. Ferðagjaldeyrir er sáralítið brot af gjaldeyrisnotkun þjóðarinnar og þar að auki bæta margir sér upp takmörkunina með tíðari ferðum en áður.

Sama röksemd gildir gagnvart hinni auknu skömmtun á ferðagjaldeyri. En sú skömmtun stuðlar líka að spillingu í meðferð gjaldeyris. Engin leið er fyrir gjaldeyrisyfirvöld.að gera skarpan greinarmun á viðskiptaferðum og skemmtiferðum. Og reynslan sýnir líka, að gjaldeyrisyfirvöld geta ekki hindrað, að svarti markaðurinn taki við hluta gjaldeyrisafgreiðslunnar úr höndum bankanna.

Svartur markaður með gjaldeyri hefur blómstrað að nýju eftir næstum fimmtán ára hlé. Hvarvetna er verið að kaupa og selja gjaldeyri á yfirverði. Þessi gjaldeyrir skilar sér ekki til bankanna. Hin aukna skömmtun ferðagjaldeyris dregur þannig úr gjaldeyrisskilum í svo miklum mæli, að hreinn gjaldeyrissparnaður verður enginn.

Flugvallarskatturinn hefur einnig misheppnazt. Hann hefur vakið töluverða gremju erlendra ferðamanna í garð Íslands, enda eru þeir ekki vanir svona miklu hugmyndaflugi í skattheimtu.

Hið broslega í því máli er, að ríkið gefur erlendum ferðamönnum meiri meðgjöf en það fær til baka í flugvallarskattinum. Þeir verða bara ekki varir við meðgjöfina, sem felst í því, að þeir neyta hér niðurgreiddra landbúnaðarafurða. Þeir fá hluta matvæla sinna fyrir hálft kostnaðarverð í verzlunum og veitingahúsum. Hinn helminginn borga íslenzkir skattgreiðendur.

Allar þessar þrjár reglur hafa verið til vandræða, eins og efasemdamenn bentu raunar á þegar í upphafi. Stjórnvöld ættu nú að sjá að sér og afnema þær í ljósi reynslunnar.

Jónas Kristjánsson

Vísir