Valdarán á geðveikrahæli

Punktar

Orð Björgvins Sigurðssonar bankaráðherra verða varla skilin öðruvísi en, að hann sé í stjórnarandstöðu. Telji samt betra að sitja áfram. Segir, að sér hafi verið haldið utan við gjaldþrot Glitnis. Ekki fengið að vita um það fyrr en á þriðja degi. Einnig segir hann Davíð ekki vilja tala við sig út af ágreiningi um Evrópusambandið. Seðlabankastjóri talaði semsagt ekki við bankaráðherra um yfirvofandi hrun, því að annað mál pirrar hann. Úr þessu varð svo valdarán Davíðs. Orð Björgvins hljóma eins og lýsing hans á geðveikrahæli. Óneitanlega nokkuð dýru hæli fyrir okkur, sem erum í lagi.