Davíð Oddsson segir Tryggva Þór Herbertsson hafa stýrt Bjarna Benediktssyni til stuðnings við IceSave. Köldu hefur andað frá Davíð síðan Tryggvi Þór andmælti aðferð Davíðs við yfirtöku á Glitni. Þá gargaði hann á Tryggva. Sagðist “persónulega sjá til þess, að þér verði ólíft á Íslandi það sem eftir er.” Hótanir Davíðs líkjast ofbeldishneigðri persónu hans. Olli lengi hrifningu undirgefinna kjósenda Flokksins. Þeir sæta þeim persónubresti að þurfa að hafa ráðríkan greifa til að hugsa fyrir sig. Greifinn valdalausi gargar núna, að Bjarni Benediktsson sé vikapiltur Steingríms J. Sigfússonar.