Ég mundi ekki kaupa afskekkta fjallajörð, væri ég Kínverji með annarleg sjónarmið. Ef ég væri að hugsa um norðursiglingar og olíu, mundi ég kaupa jörð við Raufarhöfn eða Þórshöfn. Væri ég að hugsa um að lauma her í landið, mundi ég kaupa jörð í Flatey á Skjálfandaflóa. Vissi ég, að verið er að breyta vatnalögum, mundi ég ekki kaupa jörð út á vatnsréttindi. Vænisjúkt er upphlaupið út af kaupum Kínverja á Grímsstöðum á Fjöllum. Líklegast er maðurinn einfaldlega að hugsa um að byggja upp ferðaþjónustu. Til þess er Huang Nubo ekki vanhæfur, þótt hann fyrrum unnið hjá kínverska ríkisbákninu.