Vænisýki á Austurvelli

Punktar

Fjögurhundruð manns hittust á Austurvelli í gær, að því er virðist til að andmæla IceSave samkomulaginu. Flokkur hrunverja hefur yfirtekið andófið og beygt það undir sig. Vel klætt miðstéttarfólk lýsir yfir andstöðu við sátt Íslands við umheiminn. Gefur skít í nágrannaríkin og telur Útlandið reka samsæri gegn Íslandi. Illkynjuð vænisýki í anda Umsátursins, bókar Styrmis Gunnarssonar. Heimskra manna ráð enda með sigri flokksins, sem olli hruninu og notar enn gömlu brennuvargana á Alþingi. Hrunverjar rísa úr öskustónni og taka forustu fyrir vitstola fólki, sem var í veizlunni fyrir tveimur árum.