Útvíkkuð neyðarlög

Punktar

Ekki er sopið kálið, þótt í ausuna sé komið. Ekki í Egyptalandi, að minnsta kosti. Í upphafi árs varð þar torgbylting. Þá hrakti almenningur bófann Hosni Mubarak frá völdum, svo og leyniþjónustu hans. Herinn tók völdin og lofaði þingkosningum fyrir árslok. Tognað hefur á loforðinu, því að tíminn líður og ekkert gerist. Herinn heldur áfram að ofsækja andófsfólk og neitar að fella úr gildi gömul neyðarlög frá 1981. Hefur meira að segja víkkað þau út til að ná yfir verkföll, umferðartafir og útbreiðslu slúðurs. Harðstjórn heldur því áfram og ekki bólar á neinu þingræði og lýðræði í Egyptalandi.