Útvalinn refsivöndur guðs

Punktar

Rithöfundurinn John le Carré segir í London Times í gær, að Bandaríkin hafi gengið af göflunum. 88% kjósenda vilji stríð við Írak, þótt það hafi ekki komið nálægt árásinni á New York fyrir hálfu öðru ári. Raunar telji helmingur bandarískra kjósenda sér trú um, að Írak beri ábyrgðina. Í langri grein rekur rithöfundurinn helztu röksemdir gegn langþráðu stríði. Hann skefur ekki utan af þeirri skoðun, að Bandaríkjamenn hafi truflazt og ímyndi sér, að sjálfur guð hafi afhent þeim refsivöndinn og falið þeim að stjórna öllum heiminum með harðri hendi og hjálp Ísraels.