Við venjulegar aðstæður er gott, að menn útskýri gerðir sínar. Það á ekki við um héraðsdómstóla. Dómar þeirra eru oft svo vitlausir, að þeir þola engar útskýringar. Óbeit héraðsdómstóla á tjáningarfrelsi verður ekki skýrð til aukins trausts á dómstólum. Vanmat þeirra á líkamlegu ofbeldi verður aldrei skýrt af viti. Enn síður, ef það er borið saman við ofmat á meintum andlegum þjáningum slúbberta af umfjöllun í fjölmiðlun og bloggi. Kannski mundu útskýringar koma að gagni í Hæstarétti. Varla þó ef úrskurðirnir eru síðan hraktir úti í Evrópu. Dómarar á Íslandi eru bara margir ekki hæfir.
