Útrunnir toppmenn

Punktar

Þeir eru orðnir margir svokölluðu toppmennirnir, sem reynast ekki standast mál. Og mikil er meðvirknin með þessum toppmönnum. Og enn eru þeir dómhörðu sakaðir um lýðskrum og annarleg sjónarmið. Sá tími rann út 2007, nú er 2010. Það sem kallaðist ábyrgt árið 2007 kallast nú meðvirkt árið 2010. Hér varð hrun, ekki bara bankahrun. Líka hrun lagatækna, bókhaldstækna, hagtölutækna, brasktækna og einkum stjórnmálatækna. Lunginn úr heilum stéttum brást okkur. Það er verra en bankahrunið. Pólitíska litrófið og dómstólarnir eru vanhæfir til að fást við þetta: Heilar kynslóðir “toppmanna” eru hreinlega útrunnar.