Fylgi stjórnarandstöðunnar er enn minna en fylgi ríkisstjórnarinnar segir Gallup. 36% styðja stjórnina og 16% styðja andstöðuna. Hálf þjóðin styður hvorugt. Þjóðin fjarlægist pólitíkina eins og hún kemur fram á Alþingi. Sú stofnun nýtur nánast engrar virðingar lengur. Verst er útkoma andstöðunnar, þar sem vitgrannir Morfís-drengir og Vigdís vaða uppi með skrípalátum og frekju. Bjarni Benediktsson og Sigmundur Davíð og Þór Saari eru útrunnar söluvörur. Jafnvel enn verr farnir en Jóhanna og Steingrímur, sem eru þó í eldlínunni. Væntingar þjóðarinnar í vetur mumu beinast að stjórnlagaþingi.