Frakkar og Bandaríkjamenn voru heppnir 1770-1790. Biskupinn yfir Íslandi, landlæknirinn, lýðheilsuprófessorinn og ritstjórinn stýrðu ekki hugum fólks þar í löndum. Engin áfallahjálp var veitt. Engin Altúnga, vinur Birtíngs, sagði mönnum, að þeir lifðu í bezta mögulega heimi. Engin Pollyanna predikaði. Enginn sagði, að brennuvargar ættu að fá að vera í friði við að stýra brunavörzlu. Ef biskupinn, læknirinn, prófesssorinn og ritstjórinn hefðu stýrt þar hugum, hefði ekki orðið til neitt lýðræði. Þjóðskipan okkar varð til, því að Frakkar og Bandaríkjamenn fengu útrás fyrir reiðina.