Útlendingahatur Sigmundar

Punktar

Framsóknarflokkur Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar hefur tekið forustu í að magna útlendingahatur. Sigmundur leggur fram fyrirspurn á Alþingi um þátt útlendinga í glæpum á Íslandi. Markmiðið er ljóst. Hann er að segja okkur, að Framsókn gæti hagsmuna þeirra, sem óttast útlendinga. Hann er kominn í sveit með Marine le Pen í Frakklandi, Geert Wilders í Hollandi, Pia Kærsgård í Danmörku, Jörg Haider í Austurríki. Framsókn mun sækja fylgi í “hvíta ruslið”. Það er í fátæka karlmenn á miðjum aldri, sem óttast, að útlendingar klófesti störf og velferð. Evrópu- og útlendingahatur fer Framsókn mjög vel.