Upprunalegi fílabeinsturninn

Punktar

Alls staðar verða vandræði, þegar Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn heldur fundi. Nema það sé á afskekktum eyjum eða í eyðimörkum Arabíuskaga. Alls staðar mótmælir lýðurinn fyrirlitnum sjóði, sem hefur verst rygti allra stofnana heims. Við þekkjum sjóðinn vel. Vitum, hvernig hann er ógegnsær. Hvernig hann hangir í úreltum kenningum, sem byggjast á mannvondri frjálshyggju. Hvernig hann lýgur sig milli vandræða. Heimtaði til dæmis alltaf betri tölur frá Íslandi. Þegar vandinn var raunar allt annar, handrukkun hans á vegum Bretlands og Hollands. Sjóðurinn er sjálfur upprunalegi fílabeinsturninn.