Félagslegur rétttrúnaður vill stýra sannleikanum. Einkum vill hann stjórna því, sem sagt er og skrifað í fjölmiðlum. Tilgangurinn er, að öll dýrin í skóginum eigi að vera vinir. Sá tilgangur helgar meðalið, sem felst í að ljúga að fólki. Beztu dæmin um það er lygin um íslenzkan rasisma og þögnin um fjórfalt fleiri glæpi útlendinga en innfæddra. Það kann ekki góðri lukku að stýra að byggja hugmyndafræði sína á lygum og blekkingum. Þær eru ekki rétta leiðin til að afla friðar í umræðunni um fjölmenningu og stöðu útlendinga. Ekki er heldur vænlegt til árangurs að uppnefna menn rasista.
