Upphafsorð stjórnarskrár

Punktar

Ný stjórnarskrá gæti byrjað svona: “Ísland er lýðræðisríki með sterkum leikreglum siðferðilegrar ábyrgðar, gegnsæis, jafnræðis og heiðarleika. Hér ráða hagsmunir heildarinnar og mannréttindi eru sett í öndvegi. Auðlindir lands og sjávar eru í eigu þjóðarinnar. Þær eru nýttar á sanngjarnan, sjálfbæran og skynsaman hátt með hagsmuni framtíðarkynslóða að leiðarljósi. Atvinnulíf er fjölbreytt og einstaklingsfrelsi er mikið. Samhliða jöfnuði og jöfnum tækifærum og sem jafnastri skiptingu lífsgæða og sem beztri nýtingu mannauðs. Velferð er öflug, fátækt engin og fjölskyldan höfð í fyrirrúmi.”