Ekkert ástand er svo vont, að það versni ekki með nýjum kosningum. Við búum við mistæka ríkisstjórn. Samt einu stjórnina, sem getur endurheimt auðlindir þjóðarinnar úr höndum einkaaðila. Yfir okkur vofa kosningar með góðri útkomu Sjálfstæðisflokksins. Þá dettur botninn úr kröfunni um þjóðareign auðlinda. Þá verður hætt uppgjöri okkar við fortíðina. Nýir flokkar munu fá fylgi í þeim kosningum, en ekki nóg til að stöðva Flokkinn. Það tók nefnilega ekki öll þjóðin þátt í búsáhaldabyltingunni. 35% kjósenda vilja endurheimta gamla tímann. Tunnumótmælin í dag eru upphafið að endurheimtum völdum Flokksins.