Stundum heyri ég hnussað um, að ekki sé kostur á betra fólki til að bjarga efnahagslífinu. Það er kolrangt. Fjöldi manna hefur komið fram opinberlega með miklu betri hugsun og hugmyndir en þær, sem notaðar eru. Einnig er fullyrt, að Geir Haarde og aðrir slíkir séu það skásta, sem völ sé á. Ekki yrði Steingrímur betri. Það er líka kolrangt. Með því að velja þingmenn og ráðherra með hlutkesti úr kjörskrá fengjum við miklu betri þingmenn og ráðherra. Aþeningar gerðu það á gullaldartíma sínum og það gafst betur en frægustu ræðusnillingar. Því miður höfum við undirmálslið á öllum póstum.