Umsátur umheimsins

Punktar

Hér er umsátur umheimsins að mati Styrmis Gunnarssonar og Sannra Íslendinga. Létu að sér kveða í baráttunni um þjóðaratkvæðið. Davíð Oddsson hvatti menn til að standa í lappirnar gagnvart nýlenduveldum. Sannir Íslendingar hata útlandið og vélabrögð þess, einkum Evrópusambandið. Íslendingar eru beztir og mestir, en útlendingar eru hyski, samkvæmt þeim, einkum Uffe Elleman-Jensen og Lars Christiansen. Áður vorum við mestir í útrás, samanber Ólafur Ragnar Grímsson, en núna mestir gegn útrás. Áður einkavæðingar-óðir og núna hatursmenn alþjóða kapítals. Í ranghverfu nær vor þjóðremba hæstum hæðum.