Á forsíðu Mogga í dag er stríðsfrétt um stöðnun í atvinnulífi landsins. Þetta er gömul frétt frá 2009, árinu eftir hrun. Bloomberg segir aðra sögu af atvinnulífi landsins. Árið 2011 er allt á uppleið hér á landi. Atvinna fer vaxandi, ríkisfjármál eru að komast í jafnvægi og skuldatryggingaálag er komið langt niður fyrir evrópskt meðaltal. Raunar eru flestir hagvísar ársins betri á Íslandi en meðaltal Evrópuríkja. Fjölmiðlar og álitsgjafar stjórnarandstöðunnar vilja hins vegar hafa þetta öðruvísi. Í því skyni birtir Moggi tölur frá 2009. Fáir lesa Moggann og þeir eru trúgjarnir.