Tvær stórar vikur.

Greinar

Dagblaðið heldur nú upp á 2ja vikna afmæli sitt með þann góða árangur að baki að hafa á hverjum degi verið næstmest selda dagblað á Íslandi. Þetta er næstum tvöfalt betri árangur en starfsmenn og aðrir aðstandendur Dagblaðsins bjuggust við.

Ýmsar skýringar eru til á hinum mikla áhuga blaðalesenda á Dagblaðinu. Nærtækast er að telja lesendur vera orðna þreytta á flokkspólitík og yfirgangi hagsmunasamtaka í fjölmiðlum.

Margir spáðu því, að Dagblaðið mundi hvorki reynast frjálst né óháð, þegar á hólminn væri komið. Eftir tveggja vikna reynslu eru þær raddir orðnar hjáróma, því að almenningur sér, að Daghlaðið reynir eftir fremsta megni að standa undir kjörorðum sinum.

Nýjabrumið er farið af Dagblaðinu. Eftir reynslu fyrsta dagsins hafa menn haldið áfram að kaupa það, sumpart vegna þess að þeir treysta því, að blaðið haldi áfram þeirri stefnu, sem það markaði sér í upphafi. Við munum gera okkar bezta til að bregðast ekki því trausti.

Bezta dæmið um viðtökur almennings eru smáauglýsingar Dagblaðsins. Þetta nýja blað varð í einu vetfangi fremsti smáauglýsingamiðill þjóðarinnar. Bersýnilega kom þetta í ljós fyrir réttri viku, þegar Dagblaðið tvöfaldaði fyrra Íslandsmet í birtingu nýrra, áður óbirtra smáauglýsinga.

Annað dæmið um viðtökur almennings er, að Dagblaðið hefur frá fæðingu og æ síðan verið langmesta lausasölublað Reykjavíkursvæðisins. Blaðið hefur ekki misst forustuna á þessu sviði einn einasta dag, síðan það kom út.

Þetta er þeim mun athyglisverðara fyrir þá sök, að Dagblaðinu var skammtaður óhentugur útkomutími í prentsmiðjunni á hinum fræga næturfundi, þegar aðstandendur Vísis biðu úti á gangstétt með fógeta og lögbannsbeiðnir meðferðis.

Þriðja dæmið um viðtökur almennings er, að Dagblaðið hefur ekki reynzt neitt Reykjavíkurblað í útbreiðslu. Beiðnir um áskriftir utan af landi hafa hrannazt hraðar upp en blaðinu hefur tekizt að anna. Er nú svo komið eftir tvær vikur, að sums staðar fjarri Reykjavík er Dagblaðið orðið annað eða þriðja útbreiddasta blaðið.

Fjórða dæmið um viðtökur almennings er, að frá útkomu Dagblaðsins hefur ekki liðið einn einasti dagur án þess að yfir hundrað nýir áskrifendur bættust í hóp vina og velunnara blaðsins og suma daga hafa yfir 200 bætzt í hópinn. Þetta gerir fólk að fyrra bragði – að eigin frumkvæði. Og fleiri áskrifendum en rúmlega hundrað á dag annar dreifingarkerfi okkar varla, þótt þar sé unnið dag og nótt.

Dagblaðið lifir því góðu lífi um þessar mundir, ekki lengur vegna forvitni manna, heldur vegna öflugs stuðnings fjölmenns lesendahóps, sem telur sig lengi hafa saknað blaðs eins og Dagblaðsins.

Jónas Kristjánsson

Dagblaðið