Erlendir fjármálafræðingar furða sig sumir á aðgerðaleysi ráðamanna Íslands í forsætisráðuneyti og Seðlabanka. Richard Thomas hjá Merryll Lynch er einn þeirra, talaði í sjónvarpinu í gær. Taldi hugsanlegt, að þeir ætluðu að þjóðnýta bankana. Ég tel það ósennilegt. Miklu frekar eru Geir og Davíð fangar róttækrar hægri markaðshyggju. Ráðagjafar þeirra hafa tröllatrú á aðgerðaleysi stjórnvalda, telja það allra meina bót. Því meira aðgerðaleysi þeim mun meira getur markaðurinn leikið lausum hala. Það er trúaratriði róttækra markaðshyggjumanna, að frjáls markaðsöfl lækni um síðir öll sár.
