Ögmundur Jónasson segir óstaðfestar tröllasögur af vélhjólamönnum. Segir þá heimta verndargjöld af fyrirtækjum eins og ítalska mafían. Getur samt ekki nefnt dæmi því til stuðnings. Löggan getur ekki heldur nefnt dæmi. Þetta er allt í meira lagi ótrúverðugt slúður. Ögmundur og lögreglan ráða ekki við raunverulega bófa í bönkum og fjárglæfrum. Snúa sér frekar að mönnum, sem hafa þá sérstöðu að vera merktir í bak og fyrir. Eru einkennisklæddir bófar verri en aðrir bófar? Njósnadeild Ögmundar verður samkvæmt erlendri reynslu beitt gegn fólki, sem hefur pólitískar skoðanir, einkum á umhverfismálum.