Sjálfstæðisflokkurinn hefur fundið lausn á óvinsældum einkavæðingar heilsu. Fyrst er einn þáttur sveltur. Síðan er hann einkavæddur og aukið fé lagt til hans. Biðlistar hverfa vegna aukins fjármagns. Flokkurinn segir hins vegar, að einkarekstur hafi eytt biðlistanum. Þessu trúa flokkskjósendur eins og nýju neti. Íslenzkir kjósendur eru treggreindir eins og allir vita og kjósendur Sjálfstæðisflokksins tregastir. Til stuðnings ruglinu hefur flokkurinn fundið upp mun á einkavæðingu og einkarekstri. Heilsutrikkið sé alls ekki einkavæðing, heldur bara meinlaus og sætur einkarekstur.
