Tregir dómarar og hættulegir

Punktar

Ég held, að dómarar í Hæstarétti séu frekar tregir. Enda handvaldir af Birni Bjarnasyni og öðrum dómsmálaráðherrum. Skilja ekki hlutafélagalög og nauðsyn þess, að innherjar misnoti ekki aðstöðu sína. Þar á ofan eru sumir dómarar handvaldir með tilliti til frændsemi eða vináttu við Davíð Oddsson. Það kann ekki góðri lukku að stýra. Veiðileyfi Hæstaréttar á almenna hluthafa hindrar innlenda og erlenda fjármögnun hlutafélaga og hindrar aðkomu lífeyrissjóða. Alþingi þarf strax að orða hlutafélagalögin skýrar. Svo að tregir dómarar í Hæstarétti skilji þau og hættulegir dómarar þori ekki af grafa undan þeim.