Traustið og límið er farið

Punktar

Lýðræðisþjóðfélag byggist á trausti og lími. Kaupsýsla er orðin svo víðtæk og hröð, að hún er ókleif án trausts milli manna. Kjósendur verða að geta treyst umboðsmönnum sínum. Samfélagið getur ekki hangið saman, nema stéttir og samfélagshópar telji sig viðurkennda hluta samfélagsins. Hópar fólks telji sig ekki vera útundan. Traust er fyrir löngu horfið úr pólitík og hvarf á þessu ári úr viðskiptum. Stéttaskipting í tekjum og aðstöðu hefur magnazt síðustu ár græðgisvæðingar í frjálshyggju. Þjóðina skortir traust og lím. Allir vilja vera sjálfum sér næstir. Samfélagið sundrast, hverfur.