Ef Eyjamenn vilja ekki veiða fisk á þeim kjörum, sem samfélagið býður þeim, er bezt að fela öðrum að gera það. Sjávarafli er takmörkuð auðlind, sem þjóðin á, þótt þyrlumenn og aðrir kvótagreifar í Eyjum hafi veðsett kvótann upp fyrir topp. Þeir nota aurana í alls konar vitleysu. Ferðast milli húsa í þyrlu og kaupa dagblöð til að setja þau á haus. Hafi þeir stuðning sjómanna, fiskvinnslu og bæjarstjórnar Vestmannaeyja, er rétt, að þjóðin sendi kvótann annað. Til þeirra, sem veiða vilja. Ljótt er í kreppu, að kvótagreifar reyni að taka þjóðina í gíslingu með stöðvun veiða. Tökum bara kvótann af þeim.
