Baldur McQueen birtir í ágætu bloggi sínu skrá yfir tíu loforð ríkisstjórnar Geirs Haarde um greiðslu IceSave. Loforðin voru gefin á tímabilinu frá 3. marz til 8. október 2008. Síðan rituðu embættismenn undir “samkomulag” og Alþingi samþykkti þingsályktun um greiðslu. Skýrara getur loforð ekki verið. Því er billegt hjá Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur að segja loforðin ómerk. Hún gaf eitt þeirra sjálf, svo að hún gerir sig að ómerkingi. Þetta var allt fyrir tíð núverandi ríkisstjórnar og hins fræga Svavars-samnings. Nú er málið loks komið á leiðarenda og við þurfum ekki leiðsögn Ingibjargar.