Hulda Gunnlaugsson spítalaforstjóri glotti fábjánalega í sjónvarpi. Virtist ekki kunna annað. Kom sér undan að ræða ráðningu Einars Karls Haraldssonar sem blaðurfulltrúa án auglýsingar. Virðist telja innan síns gerræðissviðs, hvort lög um atvinnuauglýsingar séu virt eða ekki. Virðist telja laun hjá ríkisfyrirtækinu Landspítalanum vera sitt einkamál. Glott-forstjórinn er greinilega langt aftan úr græðgisöld. Hún tekur við Samfylkingarkvígildi úr hendi Össurar Skarphéðinssonar utanríkisráðherra eins og ekkert hafi gerzt í samfélaginu. Tími hinnar glottandi Huldu Gunnlaugsdóttur er löngu liðinn.