Tilmælin eru sanngjörn

Punktar

Tilmæli Seðlabankans og Fjármálaeftirlitsins um meðferð gengistryggðra lána eru ágæt, svo langt sem þau ná. Breyta því samt ekki, að dómstólar þurfa að úrskurða, hvort lægstu vextir Seðlabankans séu rétta lausnin. Bezt er að fá úr því skorið sem fyrst, helzt fyrir Hæstarétti í sumar. Meðan við bíðum eftir dómi geta lánastofnanir miðað reikninga við tilmæli Seðlabankans og Fjármálaeftirlitsins. Lífið heldur áfram, en tilmælin breyta ekki seinkun lykilstærða í áætlunum. Mér finnst tilmælin sanngjörn, en margir skuldarar verða súrir. Ágreiningurinn er svo mikill, að hann leysist bara fyrir dómi.