Björn Bjarnason stríðsráðherra er tifandi tímasprengja. Hann er að koma sér upp sextíu manna herlögleglu með því að svelta almenna löggæzlu í landinu. Löggan sinnir ekki útköllum, tekur ekki skýrslur, ræður fólki frá að kæra. Sextíu manna lögregluhópur er ekki til neins gagns, hoppandi um með grímur á daglegum æfingum. Duglegur lögreglustjóri er rekinn fyrir að neita að falsa skjal fyrir ráðherrann, sem situr og horfir á bíó af Bruce Willis. Er þetta mál ekki komið út yfir allan þjófabálk? Af hverju mannar Geir Haarde sig ekki upp í að losa sig við vandræðamann, sem þjóðin skilur alls ekki.
