Ástarbréf Davíð eru öllum kunn af skýrslu sannleiksnefndar. Með þeim gerði hann Seðlabankann gjaldþrota og lagði ríkisbúið á hliðina. Nú er verið að benda á meiri óskunda, sem Davíð gerði í Seðlabankanum. Grunsamlegastur er 7. október 2008, þegar hann hélt háu gengi föstu í sex klukkustundir. Fyrir innvígða, sem ruddust um og keyptu gjaldeyri fyrir slikk. Þá hrundi gengi krónunnar. Líka er bent á bókhaldssvindl Seðlabankans. Gerði bankabófum kleift að halda uppi ránsferðum um Evrópu tveimur árum of lengi. Davíð gerði þannig IceSave mögulegt. Líklega kostaði Davíð okkur eitt þúsund milljarða.