Í hverri viku breytist taflstaðan í þorskastríðinu. Sífellt eru aðstæðurnar að breytast. Oftast eru að myndast nýir möguleikar, en stundum er einnig hætta á ferðum. Það, sem sagt var eða gert í gær, er orðið úrelt í dag.
Ekki eru nema nokkrir dagar síðan Morgunblaðið sagði, að slit á stjórnmálasambandi við brezku stjórnina væru ekki ráðleg. En nú heldur því enginn fram, að nokkur grundvöllur sé sjáanlegur til endurnýjunar á því stjórnmálasambandi.
Ríkisstjórnin var lengi að koma sér að því að slíta sambandinu. En hún gerði það um síðir. Og allir mega nú sjá, að þessi slit hafa orðið málstað okkar til gagns. Ráðamenn og fjölmiðlar á Vesturlðndum hafa fyrir bragðið áttað sig á, að meiri alvara er á ferðum en áður var talið.
Slitin stuðluðu að því að gera þorskastríðið að höfuðmáli þings Norðurlandaráðs. Þar hefur komið í ljós, að við njótum nú meiri norræns stuðnings en í fyrri þorskastríðum. Áður stóðum við svo einir, að jafnvel norskir ráðamenn ypptu öxlum. Nú er aðstaðan allt önnur og betri.
Erlendir fjölmiðlar flytja okkur einnig þær fréttir, að brezka ríkisstjórnin sé að einangrast í Atlantshafsbandalaginu. Þeir segja, að eftir stjórnmálaslitin sæti fulltrúar Breta sífelldri gagnrýni á fundum bandalagsins.
Ekki bætir það úr skák Breta, að gamlingjarnir í flotamálaráðuneyti þcirra hafa hvað eftir annað verið staðnir að barnalegum lygum um ástandið á Íslandsmiðum. Fullyrðingar þeirra um ásiglingar íslenzkra varðskipa á brezk verndarskip eru orðnar að slitinni plötu, sem hlegið er að úti um heim. Í þessu máli hefur bjargað okkur dvöl erlendra blaðamanna um borð í íslenzkum varðskipum.
Aðgerðir nokkurra sjávarútvegsmanna við stððvar varnarliðsins hér á landi hafa líka vakið mikla og jákvæða athygli úti í heimi. Frammámenn Atlantshafsbandalagsins sjá, að hér á landi eru að breiðast út raunsærri viðhorf til bandalagsins en áður var. Samt sem áður eru tilraunir forsætisráðherra til að fá aflétt aðgerðunum við stöðvar varnarliðsins ekki nema eðlilegar. Það er í verkahring forsætisráðherra að sjá um, að gerðir einstaklinga í þorskastríðinu fari ekki úr böndum.
Eftir stendur eigi að síður, að hinar hófsamlegu aðgerðir við stöðvar varnarliðsins hafa gert málstað okkar töluvert gagn. Ráðamenn Atlantshafsbandalagsins sjá, að þeir geta ekki aðgerðalaust leyft brezkum nýlendumajórum að keyra Ísland út úr bandalaginu.
Enn hefur það gerzt á síðustu vikum, að rutt hefur verið úr vegi þeirri rökvillu Morgunblaðsins og nokkurra fleiri aðila, að betra sé að semja við Breta en þeir geti með hcrvaldi veitt í óleyfi meira magn en samið mundi verða um.
Menn sjá nú almennt, að skák þorskastríðsins verður að tefla til vinnings. 20.000 tonna óleyfisafli Breta er aðeins lítil fórn okkar í góðri stöðu. Rekstrartap og taugaveiklun brezkra útgerðarmanna og skipstjóra fer vaxandi með degi hverjum. Þeir sjá sína sæng út breidda. Við skulum meta rétt og hart örvæntingu þeirra.
Jónas Kristjánsson
Dagblaðið