Þurfti að skjótast á fund

Punktar

Steinunn Birna Ragnarsdóttir, tónlistarstjóri Hörpu, laug því að blaðamanni DV, að hún þyrfti að skjótast á fund. Treystist ekki til að svara spurningu um einkaveizlu á skipi fyrir 150 manns við tendrun ljósahjúps Hörpu. Láðist síðan að slíta símtalinu og talaði af sér. Kom þá í ljós, að hún taldi almannatengilinn Andrés Jónsson hafa kennt sér að beita hvítum lygum. Tilgangurinn var að afla sér tíma til að skálda svör við erfiðri spurningu. Sjúkt viðhorf og dæmi um sigurför almannatengsla. Í öllum stórum stofnunum og fyrirtækjum eru siðleysingjar, sem hafa lygar og blekkingar fyrir stafni.