Echeverria Mexikóforseti hlýtur að vera vinsæll af Íslendingum um þessar mundir, þar sem hann lýsti nýlega yfir 200 mílna efnahagslögsögu Mexikó, einmitt á bezta tíma fyrir okkur, þegar 200 mílurnar eru að komast til framkvæmda á Íslandsmiðum.
Því er sennilega um þessar mundir ekki góður jarðvegur fyrir gagnrýni á þennan kunna mann, sem stefnir að því að verða framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna. En hann gerir fleira en að færa út landhelgi Mexikó og sumt af því er ámælisvert.
Mexikó er eitt af ríkjum þriðja heimsins, þar sem virðingin fyrir mannslífum er minni en á Vesturlöndum. Er enn í fersku minni blóðbaðið í Mexikóborg fyrir ólympíuleikana þar, þegar lögreglumenn skutu miskunnarlaust pólitíska andófsmenn til bana.
Echeverria hyggst nú erfa embætti Waldheims hjá Sameinuðu þjóðunum. Hann hefur mjög verið á ferðalögum í ríkjum þriðja heimsins að undanförnu til þess að safna fylgi við framboð sitt. Þessa viðleitni kórónaði hann á þingi Sameinuðu þjóðanna um daginn, þegar hann lagði til, að Spáni yrði vikið úr samtökunum vegna aftöku fimm andstæðinga strjórnarinnar þar.
Ekki hefur Echeverria dottið í hug að leggja til að vísa Mexikó úr Sameinuðu þjóðunum vegna morða stjórnar hans á pólitískum andstæðingum. Hann hefur ekki heldur lagt til, að Chile yrði vísað á brott, né heldur Uganda, þar sem geðveikur fjöldamorðingi ræður ríkjum.
Engum stjórnmálamanni hefur í alvöru dottið í hug að vísa Sovétríkjunum úr Sameinuðu þjóðunum, þótt stjórnvöld þar hafi til skamms tíma þverbrotið flest ef ekki öll ákvæði mannréttindayfirlýsingar samtakanna. Þetta dettur mönnum ekki í hug, af því að þeir vita, að Sameinuðu þjóðirnar eru samtök allra ríkja með vont og gott stjórnarfar og allt þar á milli.
Það er mjög eðlilegt, að falangistastjórn Francos á Spáni sé harðlega gagnrýnd af stjórnmálamönnum, fjölmiðlum og almenningi á Vesturlöndum, þar sem virðing fyrir mannslífum og andstaða við dauðarefsingu er á háu stigi. Stjórnarfarið á Spáni er alger tímaskekkja í samfélagi þjóða Vesturlanda.
Hins vegar er harðstjórnin á Spáni miklu mildari og skárri en stjórnir Austur-Evrópu og stjórnir flestra ríkja þriðja heimsins. Það er raunar mikið vafamál, hvort hún er nokkru verri en stjórn Echeverria i Mexíkó.
Tillaga Echeverria um brottrekstur Spánar er dæmigerð um þá mismunun og ofbeldi, sem þriðji heimurinn er að innleiða hjá Sameinuðu þjóðunum. Þar er stöðugt verið að ofsækja Ísrael, sem virðir þó sáttmála Sameinuðu þjóðanna betur en nokkurt ríki þriðja heimsins. Einnig er sama sem búið að ýta Suður-Afríku úr samtökunum, þótt eftir sitji ríki með meiri kúgun og misrétti.
Ef Echeverria aflar sér fylgis í framkvæmdastjórastarf samtakanna með tillögu sinni, er það ljóst dæmi þess, að þriðji heimurinn er að draga Sameinuðu þjóðirnar niður í svaðið.
Jónas Kristjánsson
Dagblaðið