Þrengt að fjöldamorðingjum

Punktar

Radovan Karadzic skiptir máli. Handtaka hans er yfirlýsing um, að lokið sé margra alda tímabili fjöldamorða í Evrópu. Nú er bara eftir einn maður, Ratko Mladic. Þegar hann verður kominn inn, hefur Balkanskagi gert hreint fyrir sínum dyrum. Skaginn var síðasti svarti bletturinn á Evrópu. Mál Karadzic sendir líka skilaboð til fjöldamorðingja utan Evrópu. Alþjóðlegi glæpadómstóllinn hefur stefnt Omar Hassan al-Bashir, forseta Súdan. Hann á hvergi höfði sínu að halla erlendis nema hjá glæpastjórnum, svo sem í Kína. Svigrúm hans hefur verið þrengt. En hvenær verður George W. Bush kærður?