Þórdís drullaðu þér frá

Punktar

Sá myndband á Eyjan.is af lögregluóeirðum á Patreksfirði. Þar snöpuðu þrjú löggufífl fæting við mann, sem sýndi ekki mótþróa. Þeir hlupu á eftir honum og úðuðu á hann pipargasi, felldu hann og lögðust ofan á hann. Lágu lengi ofan á honum og görguðu “Þórdís drullaðu þér frá.” Myndbandið sýnir, að íslenzkar löggur hafa nú þegar fleiri vopn en þeir ráða við. Ekki er á þau vopn bætandi og allra sízt rafbyssum. Nú þarf að fara að taka vopnin af fíflunum og senda þá á námskeið í mannasiðum hjá Sæma rokk. Það er ekki hlutverk löggunnar að snapa fæting við samfélagið og framleiða óeirðir.