Þjóðnýttir lífeyrissjóðir

Punktar

Allt bendir til, að lífeyrissjóðirnir verði þjóðnýttir til að bjarga skinni græðgiskarlanna. Sjóðirnir verða fengnir til að taka 200 milljarða af góðum eignum erlendis til að moka í ríkishítina. Ráðamenn sjóðanna hafa svikið umbjóðendur sína, teflt ellilaunum landsmanna í tvísýnu. Þeir hafa svikið hlutverk sjóðsstjóra. Hafa kastað góðum peningum eftir vondum peningum. Engin afsökun er, að bankarnir hafi samhliða verið fengnir til að flytja inn jafnmikið af erlendum eignum. Sjóðirnir eiga enga sök, en bankarnir og bankastjórarnir eru ábyrgir. Þeir drekktu trausti Íslands sem vörumerkis.