Norðmenn skipta sinni þjóðarauðlind þannig, að þjóðin fær 70% og notendur auðlindarinnar fá 30%. Hér er skiptingin sú, að þjóðin fær 5% og notendur fá 95%. Hvort sem er í fiskveiðum eða iðnaði úr raforku. Á íslenzku þýða þessar tölur, að jafnvægi er í Noregi, en hér ríkir arðrán. Um arðránið var rekin pólitísk mafía Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks. Tilvera flokkanna tveggja snýst um að hindra endurhönnun á skiptingu þjóðarauðsins. Kvótagreifarnir vilja áfram safna auði til að fela erlendis. Og til að fjárfesta í svipaðri áhættu og fyrir hrun. Við skulum ná öllum þjóðarauðnum úr höndum bófanna.