Þjóðin hefur það bara gott

Punktar

Könnun Gallup á mati fólks á aðstæðum sínum sýnir sama og ég hef oft sagt í blogginu. Helmingur þjóðarinnar er sáttur við lífsgæði sín og telur sig hafa það gott. Tæplega helmingur þjóðarinnar telur sig eiga í basli við að halda sjó. Aðeins örfá prósent telja sig vera í þrengingum, sennilega bara tvö prósent þjóðarinnar. Þetta er frábær staða tveimur árum eftir hrun. Hér hefur fólk það bara helvíti gott. Velferð og heilsugæzla og skólar virka eins og áður. Margir skuldugir hafa fengið afslátt og svigrúm. Ríkisstjórnin hefur náð tökum á ríkisfjárhag eftir bankahrun. Og flugeldasala er rífandi.