Þjóðin hefur það bærilegt

Punktar

Mikill meirihluti fólks borgar af skuldum sínum og þiggur ekki afskriftir, sennilega 80% fólks. Hagsmunasamtök heimilanna jafngilda því ekki samtökum allra Íslendinga, þótt þau tali sem slík. Rúmlega helmingur þjóðarinnar hefur það bærilegt, sem sést af tölum um árlegan fjölda í sólarlandaferðum. Að auki hafa margir það bærilegt, þótt þeir fari ekki til útlanda. Af hávaða Hagsmunasamtaka heimilanna og tunnusláttarfólks mætti hins vegar ætla, að þjóðin sé almennt í skuldafjötrum. Mín vegna má neyða banka til að slá meira af skuldum óráðsíuliðsins. En fráleitt er að leggja það á skattgreiðendur.