Umræður og tillögur og atkvæðagreiðslur um vantraust eru eðlilegur þáttur í lýðræði. Þingmeirihlutar eru kosnir til fjögurra ára og hafa umboð til að ráða framkvæmdavaldinu þann tíma. Á meðan getur kvarnast úr traustinu. Þá er lögð fram tillaga um vantraust. Að þessu sinni var hún felld. Ríkisstjórnin nýtur því nægilegs trausts til að halda áfram. Í þessu ferli er ekkert rúm fyrir skoðanakannanir eða forsetaákvarðanir um skort á trausti þjóðarinnar. Samkvæmt kerfinu er hún spurð á fjögurra ára fresti. Ljóst er, að hún þarf að vanda sig betur, en það er henni í sjálfsvald sett. Hún ber ábyrgðina.